Stofan okkar á Selfossi
Staðsett í hjarta SelfossTannlæknaþjónustan.is á Selfossi er starfrækt í húsi Arionbanka við Austurveg 10. Bílastæði eru sunnan við húsið þar sem einnig er inngangur stofunnar. Gengið er upp á aðra hæð en einnig er lyfta í húsinu og aðgengi fyrir fatlaða. Staðsetningin í hjarta bæjarins er stutt frá grunnskóla og framhaldsskóla og í göngufæri við flestar stofnanir bæjarins.
Stofan á Selfossi hefur verið starfrækt frá árinu 1990. Á stofunni starfa
- Hallur Halldórsson tannlæknir
- Sigurjón Sveinsson tannlæknir
- Elísabet Ásta Bjarkadóttir tannlæknir
- Matthías Sigurðarson tannlæknir
- Elísabet Kjerúlf tannfræðingur
Gísli Vilhjálmsson tannréttingatannlæknir veitir þjónustu á sviði tannréttinga á stofunni einn dag í mánuði.
Aðstoðarstúlkur á Selfossi eru
- Eva Arnardóttir
- Auðbjörg Guðmundsdóttir
- Sigríður Árnadóttir
Tannlæknaþjónustan.is á Selfossi býður upp á allar almennar tannlækningar barna og fullorðinna, útlitstannlækningar,tannplanta, tannhvíttanir ofl.
Hafðu samband og athugaðu hvað við getum gert fyrir þig.
Austurvegur 10, 800 Selfoss, Iceland
Tannlæknaþjónustan.is á Selfossi er staðsett að
Austurvegi 10, 800 Selfossi
Sími: 482-3333
Opnunartími: 8:00 til 17:00 alla virka daga.