Að koma með barn til tannlæknis
Hvenær er tímabært að koma með barn til tannlæknis?
Við hjá Tannlæknaþjónustunni mælum með að börn komi til tannlæknis í fyrsta skipti þegar þau eru tveggja og hálfs árs til þriggja ára eða í síðasta lagi þegar allar tuttugu barnatennurnar eru komnar í munninn.
Að mörgu er að hyggja þegar koma á með barn til tannlæknis
Undirbúningurinn
Áður en barn fer til tannlæknis í fyrsta skipti er gott að ræða heimsóknina á jákvæðum nótum við barnið og jafnvel skoða barnabækur um tannlæknaheimsóknir saman.
Varast skal að lýsa í smáatriðum hvað fer fram í þessari fyrstu heimsókn þar sem foreldrum hættir til að lýsa meðferðum sem ekki eru framkvæmdar.
Forðist að lýsa eigin tannlæknareynslu þar sem hún er oftast ekki í samræmi við það sem barnið kemur til með að upplifa.
Gott er að tala um að tannlæknirinn ætli að telja tennurnar og kannski bursta þær.
Ekki lofa barninu gulli og grænum skógum standi það sig vel þar sem það leiðir til tortryggni hjá barninu og veldur vandræðum ef barnið stendur ekki undir væntingum.
Öll börn fá verðlaun hjá tannlækninum sem ávalt tekst að finna einhvern jákvæðan flöt á hegðun barnins sem hægt er að verðlauna.
Athugið að gefa barninu að borða áður en það fer til tannlæknis vegna þess að tennur eru oftast flúorpenslaðar í skoðunartímanum. Þá má ekki borða fasta fæðu í 1,5 klst á eftir. Ekki er heppilegt að skipuleggja ferð í bakaríið eða á veitingastað eftir tannlæknaheimsókn.
Mætið tímanlega
Mikilvægt er að mæta tímanlega í pantaðan tíma og leyfa barninu að átta á umhverfinu í rólegheitum. Fara úr utanyfirfötum og skóm, skoða dótið í barnahorninu og leika sér og nota salerni ef þörf er á því. Þegar tannlæknirinn eða aðstoðarfólk kemur að sækja barnið á biðstofuna er fyrsta stigi aðlögunar lokið ef rétt er farið að.
Á staðnum
Gott er að leyfa tannlækninum að nálgast barnið án þess að grípa fram í samskiptin að óþörfu. Við leyfum foreldrum ávalt að fylgja barninu inn á tannlæknastofuna sé þess óskað. Mikilvægt er að foreldrar haldi sig til hlés meðan tannlæknir nálgast barnið og reynir að ná athygli þess. Stundum geta foreldrar verið hjálplegir ef um einhverja hegðunarerfiðleika er að ræða. Varast skal að trufla aðlögun og meðferð barnsins með óþarfa masi við tannlækninn, það hindrar hann frá því að ná athygli barnsins.
Mikilvægt er að láta tannlækninn vita séu um einhver hegðunarfrávik eða þroskafrávik að ræða hjá barninu, helst um leið og tíminn er pantaður. Það getur verið að tannlæknirinn þurfi að nota aðrar aðferðir til að nálgast barnið sé um slíkt að ræða. Foreldrar geta verið afar hjálplegir og leiðbeint tannlækni og starfsfólki um hvernig best sé að nálgast barnið ef um slík frávik er að ræða.
Þegar vel gengur
Við venjulega skoðun sest barnið í stólinn, stólnum er hallað aftur, tennur eru skoðaðar með spegli og sondu og stundum eru teknar röntgenmyndir. Oftast eru tennur pússaðar og flúorpenslaðar. Athugið að eftir flúorpenslun má barnið ekki borða fasta fæðu í 1,5 klst og ekki bursta tennur um kvöldið.
Gangi heimsóknin að óskum fær barnið að sjálfsögðu hrós og verðlaun og foreldrar og barn ganga stolt út.
Ef ekki gengur allt að óskum
Gangi ekki allt að óskum og barnið er ósamvinnuþýtt er afar mikilvægt að fara ekki í neikvæðan gír og ásaka barnið. Öll börn vilja innst inni standa sig vel þótt þau séu ekki alltaf fær um það þegar á hólminn er komið. Oftast er bókaður nýr tími og barnið fær annað tækifæri. Í millitíðinni er hægt að undirbúa barnið fyrir næstu heimsókn. Talið ekki um fyrri frammistöðu barnsins á neikvæðan hátt svo barnið heyri. Talið jákvætt um tannlækninn og starfsfólk og umhverfi tannlæknastofunnar. Svo getur farið að það gangi heldur ekki allt að óskum næst þegar barnið kemur. Sum börn koma til okkar full af góðum ásetningi en hlaupa svo í baklás um leið og tannlæknirinn birtist. Örvæntið ekki því þetta eldist af langflestum börnum. Eftir 4-5 ára aldur eru all flest börn fær um að heimsækja tannlækninn og láta framkvæma venjulegar meðferðir. Aðeins lítill hluti barna þarf á sérstökum úrræðum að halda eins og td. róandi lyfjum eða svæfingu.
482-3333 mottaka@tannalfur.is