- Tannlæknaþjónustan.is - http://tannlaeknathjonustan.is -

Tannhvíttun

Hvers vegna tannhvíttun?

Margir upplifa tennur sínar of dökkar eða gular og einnig dökkna tennurnar með aldrinum. Litur tanna getur farið eftir litarrafti hvers og eins og eru því sumir með dökkar tennur frá náttúrunnar hendi. Þegar fólk eldist þéttist tannbeinið og tennurnar dökkna auk þess sem lífstíll okkar bætir utanaðkomandi lit á tennurnar. Hægt er að skipta þessu í 2 hluta.

Ytra yfirborð: Yfirborðslitur getur stafað reykingum, drykkjum, svo sem kaffi, tei og rauðvíni, vanþrifum og tannstein. Einnig getur litur fallið á gamlar fyllingar. Yfirborðslitur er fjarlægður með tannhreinsun og einnig er hægt að pússa eða skipta út gömlum fyllingum.

Innra yfirborð: Litur tannbeinsins sem er undir glerungnum skín í gegnum glerunginn. Dökkt tannbein gefur tönnunum dekkri lit?.   Auðveldara er að lýsa gulleitt tannbein en grátt. Stundum hefur glerungurinn slitnað  svo það skín í dökkt tannbeinið. Gott dæmi um þetta getur verið bitkantur neðri góms framtanna. Stundum er nauðsynlegt að loka yfir bert tannbein með fyllingarefnum áður en tannhvíttun hefst. Það eykur árangur meðferðarinnar og minnkar líkur á kuli eftir meðferð.

Tannhvíttun er árangursrík meðferð til  að bæta útlit tanna. Aðferðin er tiltölulega einföld og áhættulítil sé hún framkvæmd af fagaðilum.

Hverjir geta farið í tannhvíttun?

Nauðsynlegt er að fara í tannskoðun áður en tannhvíttun fer fram. Stundum er þarf að hreinsa tennurnar áður en tannhvíttun hefst og loka öllum opnum tannskemmdum með fyllingum.

Allir sem náð hafa 18 ára aldri og eru með heilbrigðar og hreinar tennur geta farið í tannhvíttun sé til þess ástæða. Þó ber að gæta varúðar hjá fólki með mjög viðkvæmar tennur. Ekki er heldur mælt með meðferðinni hjá einstaklingum með meðfædda glerungs eða tannbeinsgalla.

Gæta skal varúðar hjá ófrískum konum og konum með börn á brjósti. Skynsamlegt getur verið að fresta meðferðinni.

Fylgja einhverjar aukaverknir tannhvíttunarmeðferðinni?

Algengasta aukaverkun tannhvíttunar er tímabundin viðkvæmni og kul í tönnum. Ef það kemur upp er best að hvíla sig á meðferðinni og halda áfram þegar viðkvæmni minnkar. Þá er oft gott að fara rólega af stað aftur, til dæmis að nota meðferðina annan hvorn dag og í styttri tíma í einu. Einnig er hægt að leita á tannlæknastofuna og fá efni sem draga úr óþægindum, séu þau veruleg.

Ekki er talið að glerungur skaddist af meðferðinni ef farið er eftir fyrirmælum. Varast ber að ofnota heimahvíttunina.

Hvernig fer tannhvíttun fram?

Efnið sem við notum til að hvítta tennur er yfirleitt karbamíð peroxíð eða vetnisperoxíð. Einnig eru í blöndunni efni sem minnka líkur á tannkuli og auka þægindi við notkun. Hvíttunarefnið gengur inn í tennurnar og losar súrefni en við það hvítna tennurnar.

Tvær aðferðir eru til að hvítta tennur:

  • Hvíttun í stól, svo kölluð hraðhvíttun
  • Hvíttun með skinnum, heimahvíttun

Hvíttun í stól: Hvíttunin fer fram á stofunni af sérhæfðu aðstoðarfólki tannlæknis eftir að tannlæknir hefur mælt með meðferðinni fyrir viðkomandi einstakling. Gúmmíefni er borið á tannhold til að verja það og síðan er sterkt tannhvíttunarefni borið á tennurnar í nokkrum umgöngum. Við þetta lýsast tennurnar yfirleitt mjög mikið en hluti af því orsakast af ofþornun þannig að árangurinn gengur alltaf að einhverju leyti til baka. Meðferðin tekur rúmar 2 klukkustundir.

Hvíttun með skinnum: Mót er tekið af efri og neðri góms tönnum og steypt mótin með gipsi. Búnir eru til glærir gómar, svo kallaðar skinnur, sem falla þétt að tönnunum. Tannhvíttunarefnið er sett í skinnurnar og þær síðan settar yfir tennurnar. Meðferðin tekur yfirleitt um 1-2 klst á dag í 7-14 daga. Í erfiðari tilfellum er stundum þörf á að lengja meðferðina.

Ef tannhvíttun í stól er valin mælum við með því að viðkomandi fái sér einnig skinnur til heimahvíttunar. Oft er þörf á að bæta við meðferðina og viðhalda henni.

Geta allir búist við góðum árangri?

Rannsóknir sýna að flestir sem fara í tannhvíttun er ánægðir með meðferðina. Best tekst til í þeim tilfellum þar sem tennur hafa dökknað með aldrinum og hjá einstaklingum með gulleitar tennur. Gráleitar tennur geta verið erfiðari viðfangs en alltaf næst einhver árangur.Tannhvíttun virkar ekki á fyllingar, postulín, svar-bláar tennur sem litast hafa af silfurfyllingum eða fasta liti í sprungum.    Ekki er heldur hægt að lýsa upp rótfylltar tennur utan frá, koma þarf lýsingarefninu inn í tennurnar og er þá meðferðin annars konar og miðar að einstakri tönn.  Leitaðu álits hjá tannlækni þínum um hvort tannhvíttun henti þér.

Við mælum eindregið gegn því að leita annað en á tannlæknastofur til að fá tannhvíttunarmeðferð

Góð þekking á  lýsingarefnum og mismunandi styrk þeirra er nauðsynleg til að meðferðin takist sem best.  Einnig þarf að skoða tennur og tannhold vandlega áður en tekin er ákvörðun um meðferð.

Er tannhvíttun varanleg meðferð?

Að vissu marki má segja að tannhvíttun sé varanleg meðferð þar sem tennurnar verða sjaldnast jafn dökkar aftur hafi góðum árangri verið náð. Hins vegar er alltaf eitthvað afturhvarf í meðferðinni. Algengt er að endurtaka meðferðina, í nokkra daga í senn, einu sinni á ári eða á nokkurra ára fresti.  Skinnurnar endast afar vel og hægt er að kaupa tannhvíttunarefni á stofunni. Einnig er hægt að koma í styttri hraðhvíttunartíma til að fríska upp á fyrri tannhvíttun.

Hvort er betra að fara í hraðhvíttun eða hvítta heima?

Fyrir flesta er heimahvíttun ein og sér fullnægjandi meðferð sem felur í sér lágmarks áhættu. Hraðhvíttun getur hins vegar verið mjög árangursrík en hætta á aukaverkunum svo sem kuli í tönnum er meiri. Þess vegna mælum við ekki með henni fyrir unga einstaklinga.

Við bjóðum einnig upp á hraðhvíttun og heimahvíttun í einum hagstæðum pakka til að ná hröðum og góðum árangri.

Stundum hefur tannhvíttun með ljósum verið áberandi í umræðunni og jafnvel hafa sést auglýsingar um svo kallaða „leiserhvíttun.“ Í raun er það einungis venjulegt blátt ljós sem í besta falli hraðar ferlinu. Alltaf þarf að bera tannhvíttunarefni á tennurnar. Efnin sem við notum eru ekki háð notkun slíkra ljósa.

Tannlæknaþjónustan.is Austurvegi 10, Selfossi
482-3333 mottaka@tannalfur.is
Tannlæknaþjónustan.is Austurvegi 10, Selfossi 482-3333 mottaka@tannalfur.is