Tannheilsa á meðgöngu
Meðganga hefur lítil áhrif á tannheilsu nútímakonunnar
Ekki er talin ástæða til að óttast auknar tannskemmdir eða tannlos á meðgöngu ef allt er með eðlilegum hætti. Áður fyrr var talið að meðganga hefði slæm áhrif á tannheilsu en rannsóknir hafa sýnt að í flestum tilvikum á það ekki við rök að styðjast heldur skiptir meira máli hvernig tannheilsan var fyrir meðgöngu hjá viðkomandi konu. Aukin meðvitund um heilsurækt á meðgöngu, þar með talin umhirða tanna, hefur gert áhrifin á tannheilsu hverfandi.
Matarvenjur breytast stundum á meðgöngu. Ógleði getur leitt til tíðra aukabita og sumar konur fá sterka löngun í sætindi. Uppköst gera munnvatnið súrt og geta tennur þá frekar skemmst eða glerungur eyðst. Skolið munninn vandlega eftir uppköst en bíðið með að bursta tennur í a.m.k. hálftíma. Vandið fæðuvalið og varist bita á milli mála. Skolun með flúorskoli og notkun sykurlauss tyggigúmmís getur hjálpað til að viðhalda góðri tannheilsu þegar um uppköst eða bakflæði er að ræða.
Hormónabreytingar
Hormónabreytingar á meðgöngu valda tannholdsbólgum og aukinni blæðingu úr tannholdi. Mikilvægt er að halda áfram góðri burstun og tannþráðsnotkun þótt blæði. Bursta skal tennur amk tvisvar á dag og nota tannþráð einu sinni á dag. Ef tannhirða er góð valda þessar tímabundu bólgur engum skaða í annars heilbrigðum munni.
Tannskemmdir
Munið að sífellt nart skemmir tennur. Eftir hverja máltíð þurfa tennurnar tíma til að jafna sig og endurheimta steinefni sem leysast út í munnvatnið. Hæfileg tíðni fæðuinntöku er að hámarki 6 sinnum á dag. Drekkið einungis vatn á milli mála.
Njótið meðgöngunnar
Munið að meðganga er tímabundið ástand sem skal njóta eins og kostur er. Hugið að heilsunni, sjálfra ykkar og barnsins vegna.
Prenta þessa grein