Bráðatannlækningar

Tannverkur, bólga eða brotin tönn getur komið upp skyndilega og þá er mikilvægt að fá álit tannlæknis eins fljótt og hægt er. Tannlæknaþjónustan rekur ekki opna bráðavakt og því er best að hringja á stofuna áður en mætt er. Oft losna tímar samdægurs vegna veikinda eða forfalla annarra viðskiptavina. Við reynum ávallt að koma bráðatilfellum að eins fljótt og mögulegt er og í langflestum tilvikum finnum við ásættanlega lausn á bráðavandanum.

Illustration of a dentist talking to a patient.

Hvað telst bráðatilfelli?

Algengasta ástæða bráðatíma er tannverkur. Verkurinn getur stafað af djúpri tannskemmd, sprungu eða bólgu í tannkviku, svokallaðri kvikubólgu eða „tannpínu“. Bólga eða sýking getur einnig myndast við rótarenda tannar og valdið ábitsverk, bólgu eða graftarmyndun.

Brotin tönn, laus eða brotin fylling og króna sem hefur losnað geta einnig þarfnast skjótrar meðferðar. Sama á við um áverka á tennur, til dæmis ef tönn losnar, færist úr stað eða slæst alveg úr munni. Við slíkan áverka er mikilvægt að hafa strax samband því skjót meðferð getur skipt miklu máli fyrir batahorfur tannarinnar.

Önnur bráðatilfelli eru meðal annars sýkingar í tannholdi, bólga í kringum endajaxla, miklir verkir eftir tannúrdrátt eða aðgerð og blæðing sem stöðvast ekki með eðlilegum hætti.

Hvað er gert í bráðatíma?

Markmið bráðatímans er að greina orsök vandans, draga úr verkjum og koma í veg fyrir að ástandið versni. Tannlæknir fer yfir einkennin, skoðar tennur og munnhol og tekur röntgenmyndir ef þörf er á. Stundum eru einnig gerð próf til að meta ástand tannkviku og finna út hvaða tönn veldur verknum.

Meðferðin fer eftir orsök vandans. Hægt getur verið að setja bráðabirgðafyllingu, hefja rótfyllingarmeðferð, opna og hreinsa sýkta tönn, hleypa út greftri, draga tönn eða gera við brotinn eða hvassan tannkant. Ef fylling eða króna hefur losnað er metið hvort hægt sé að festa hana aftur eða gera tímabundna viðgerð.

Við leggjum áherslu á að útskýra hvað veldur vandanum og hvaða meðferðarkostir eru í boði.

Eru alltaf gefin sýklalyf við sýkingu?

Sýklalyf eru ekki nauðsynleg við flestum tannverkjum og koma ekki í stað meðferðar á orsök vandans. Oftast þarf að opna, hreinsa eða rótfylla sýkta tönn, hleypa út greftri eða fjarlægja tönnina.

Sýklalyf geta verið nauðsynleg ef sýking er að breiðast út, mikil bólga er til staðar eða almenn einkenni hafa komið fram, svo sem hiti og slappleiki. Tannlæknir metur í hverju tilviki hvort þörf sé á sýklalyfjum.

Þarf að koma aftur eftir bráðatímann?

Í bráðatíma er fyrst og fremst lögð áhersla á að greina vandann, lina verki og meðhöndla það sem ekki má bíða. Stundum er hægt að ljúka meðferðinni í sama tíma en oft þarf að bóka annan tíma til að leysa vandamálið varanlega.

Til dæmis getur þurft að ljúka rótfyllingu, setja endanlega fyllingu eða krónu, fjarlægja tönn eða fylgja áverka eftir. Tannlæknirinn fer yfir næstu skref og getur lagt fram meðferðar- og kostnaðaráætlun ef frekari meðferðar er þörf.

Hvenær þarf tafarlausa aðstoð?

Mikil eða ört vaxandi bólga í andliti eða munni getur verið merki um alvarlega sýkingu. Ef þú átt erfitt með að anda eða kyngja, bólga nær í átt að auga, mikil blæðing stöðvast ekki eða um alvarlegan áverka á andlit er að ræða skaltu leita tafarlaust á bráðamóttöku eða hringja í 112.

Hvað kostar bráðatími?

Kostnaður fer eftir því hvaða rannsóknir og meðferð þarf að framkvæma. Skoðun, röntgenmyndataka og bráðameðferð eru algengustu gjaldliðirnir. Þú getur séð dæmi um verð í verðskránni okkar.

Þarft þú bráðatíma hjá tannlækni?

Ef þú ert með tannverk, bólgu, brotna tönn eða annan bráðavanda er best að hringja á stofuna til að ná sambandi við okkur á sem fljótastan hátt. Við metum hversu brýnt ástandið er og reynum að finna tíma fyrir þig eins fljótt og mögulegt er.