Fréttir, ráð og fróðleikur
Langar þig að fræðast meira um tannlækningar eða munnheilsu almennt? Hér finnur þú blöndu af reynslusögum sjúklinga, fræðandi greinum og gagnlegum upplýsingum. Góða lestur!
Munnþurrkur
Munnþurrkur (xerostomia) er ástand þar sem munnvatnsframleiðsla er af einhverjum orsökum minni en hún á að vera og í alvarlegum tilfellum, engin. Einn af hverjum fimm fullorðnum þjást af munnþurrki af mismunandi ástæðum.

Ungmennaafsláttur
Þegar ungmenni ná 18 ára aldri breytist margt, meðal annars það að þau þurfa sjálf að standa straum af kostnaði við tannlækningar. Á þessum aldri getur verið freistandi að verja peningunum í aðra hluti sem virðast skemmtilegri en reglulegt eftirlit hjá tannlækni.

Orkudrykkir og tannheilsa
Orkudrykkir hafa orðið mjög vinsælir, sérstaklega meðal ungs fólks. Þessir drykkir innihalda sýru, eins og sítrónusýru og fosfórsýru, sem lækka sýrustig í munni og valda glerungseyðingu. Þetta gerir tennur þynnri, mattari og viðkvæmari fyrir skemmdum og næmi. Unglingar með nýlega fullorðinstennur eru sérstaklega viðkvæmir. Til að vernda tennurnar er best að drekka orkudrykki hratt, forðast að súpa þeim lengi, ekki bursta tennurnar strax eftir drykkju og skola með vatni eða borða ost til að jafna sýrustigið.

Nikótínpúðar- eru þeir svo slæmir?
Þú finnur þörfina grípa þig, tekur fram litlu öskjuna og setur púðann undir vörina. Nikótín streymir fljótt út í blóðrásina. Þú upplifir róandi tilfinningu þegar fíkninni er fullnægt en í líkamanum fer af stað röð viðbragða sem flest eru langt frá því róandi.

Hvenær á barn að hætta með snuð?
Snuð geta veitt börnum mikinn stuðning á fyrstu mánuðum lífsins, en of löng notkun getur haft neikvæð áhrif á málþroska, tennur og svefn. Í þessari grein fjöllum við um hvenær best er að venja börn af snuði, hvaða kvillar geta fylgt of langri notkun og hvernig foreldrar geta tekið skrefin í átt að snuðlausum dögum.