Skelkrónur

Skelkróna er þunn skel úr postulíni sem er límd á framhlið tannar. Með skelkrónum er hægt að breyta lit, lögun og stærð tanna og bæta þannig útlit brossins. Skelkrónur eru sérsmíðaðar fyrir hverja tönn og markmiðið er að útkoman verði falleg og náttúruleg.

illustration of teeth together.

Hvað er skelkróna?

Ólíkt hefðbundinni krónu þekur skelkrónan aðeins framhlið tannarinnar. Því þarf yfirleitt að fjarlægja mun minna af eigin tannvef en þegar hefðbundin króna er gerð.

Skelkrónur geta hentað til að lagfæra mislitaðar eða slitnar tennur, minni tannbrot, óreglulega lögun og bil á milli tanna. Postulínið endurspeglar ljós á svipaðan hátt og náttúrulegur glerungur og hægt er að laga lit og áferð skelkrónunnar að tönnunum í kring.

Henta skelkrónur öllum?

Áður en meðferð er ákveðin þarf að skoða tennur, tannhold og samanbit vandlega. Tennurnar þurfa að vera heilbrigðar og meðhöndla þarf tannskemmdir eða tannholdsbólgu áður en skelkrónur eru gerðar.

Skelkrónur henta ekki alltaf ef tennur eru mikið skemmdar, með stórar fyllingar eða verulega skakkar. Þá getur önnur meðferð, til dæmis plastviðbót, hefðbundin króna eða tannrétting, verið heppilegri. Ef einstaklingur pressar eða gnístir tönnum getur þurft að nota bitskinnu til að vernda skelkrónurnar.

Við leggjum áherslu á að velja eins væga meðferð og mögulegt er og varðveita sem mest af heilbrigðum tannvef. Stundum er hægt að ná þeirri breytingu sem óskað er eftir með tannhvíttun, plastviðbótum eða tannréttingum án þess að gera skelkrónur.

Hvernig fer meðferðin fram?

Meðferðin hefst með skoðun og samtali um hverju þú vilt breyta. Oft eru teknar ljósmyndir og tennurnar skannaðar með þrívíddarskanna. Út frá því er lögun, litur og heildarútlit meðferðarinnar skipulagt.

Yfirleitt þarf að slípa þunnt lag af glerungi af framhlið tannarinnar til að skapa pláss fyrir skelkrónuna, en umfangið fer eftir aðstæðum. Þar sem hluti tannvefsins er fjarlægður er meðferðin yfirleitt ekki afturkræf.

Eftir slípun og annan undirbúning eru tennurnar skannaðar í þrívíddarskanna og skannið síðan sent til tannsmíðastofu þar sem skelkrónurnar eru sérsmíðaðar. Á meðan getur þurft að setja bráðabirgðaskeljar á tennurnar. Þegar skelkrónurnar eru tilbúnar eru þær mátaðar vandlega og litur, lögun og bit athugað áður en þær eru límdar fastar.

Hversu lengi endast skelkrónur?

Skelkrónur geta enst mjög lengi þegar þær eru límdar við heilbrigðan glerung, samanbit er hagstætt og vel er hugsað um tennurnar. Þær geta þó brotnað, losnað eða þurft endurnýjun með tímanum eins og aðrar tannviðgerðir.

Það þarf að bursta tennur með skelkrónum tvisvar á dag og hreinsa milli þeirra daglega. Reglulegt eftirlit hjá tannlækni er mikilvægt til að fylgjast með skelkrónunum, tannholdinu og eigin tannvef undir þeim.

Hvað kosta skelkrónur?

Kostnaður fer eftir fjölda skelkróna, efnisvali og þeirri undirvinnu sem þarf áður en meðferð hefst. Þú getur séð dæmi um verð í verðskránni okkar. Yfirleitt kostar skelkróna það sama og hefðbundin króna.

Áður en ákvörðun um meðferð er tekin kemur þú í skoðun þar sem tannlæknir metur aðstæður, fer yfir mögulega meðferðarkosti og leggur fram meðferðar- og kostnaðaráætlun.

Gætu skelkrónur hentað þér?

Ef þú vilt breyta lit, lögun eða útliti einnar eða fleiri tanna tökum við vel á móti þér í skoðun. Við hlustum á óskir þínar, metum hvaða meðferð hentar best og leggjum áherslu á heilbrigða, fallega og náttúrulega niðurstöðu.