Tannhreinsun
Við tannhreinsun eru tannsteinn, bakteríuskán og yfirborðsmislitun fjarlægð af tönnunum. Tannhreinsun fer oft fram samhliða reglulegu eftirliti hjá tannlækni en ef mikill tannsteinn hefur myndast eða tannhold er bólgið getur verið betra að bóka sérstakan tíma. Hjá Tannlæknaþjónustunni sinna bæði tannlæknar og tannfræðingar tannhreinsunum. Á Selfossi og í Reykjavík er hægt að bóka sérstakan tíma hjá tannfræðingi.
Hvað er tannsteinn?
Á tönnunum myndast stöðugt bakteríuskán. Ef hún er ekki fjarlægð með tannburstun og hreinsun milli tanna getur hún harðnað vegna steinefna í munnvatninu og orðið að tannsteini.
Tannsteinn getur myndast bæði ofan og neðan við tannholdsbrún. Hann situr fastur við yfirborð tannanna og verður ekki fjarlægður með venjulegri tannburstun. Hrjúft yfirborð hans auðveldar bakteríuskán að safnast fyrir og getur þannig stuðlað að bólgu í tannholdi.
Hvernig fer tannhreinsun fram?
Tannsteinn er fjarlægður með sérstökum tannhreinsiverkfærum og sérstöku tæki sem þar sem hljóðbylgur framkalla titring sem losar tannstein frá tönnum. Tennurnar eru síðan yfirleitt pússaðar til að fjarlægja yfirborðsmislitun, til dæmis eftir kaffi, te eða tóbak. Yfirborðslitur er líka stundum fjarlægður með sandblásturstæki sem notar fínan sand og loftþrýsting til að vinna á litnum.
Venjuleg tannhreinsun er yfirleitt ekki sársaukafull. Ef mikill tannsteinn er til staðar eða tannholdið er bólgið getur þó fundist fyrir tímabundnum óþægindum eða kuli. Þá er hægt að laga meðferðina að þínum þörfum og deyfa svæðið ef nauðsyn krefur.
Hvað gerir tannfræðingur?
Tannfræðingur er löggiltur heilbrigðisstarfsmaður sem sérhæfir sig í tannvernd, tannhreinsun og fræðslu um tannhirðu. Tannfræðingur skoðar munnholið, fjarlægir tannstein og bakteríuskán, pússar tennur og veitir einstaklingsmiðaðar leiðbeiningar um tannburstun og hreinsun milli tanna.
Tannfræðingar vinna náið með tannlæknum að forvörnum og meðferð tannholdssjúkdóma. Ef merki sjást um tannskemmdir, tannholdssjúkdóm eða annað ástand sem þarfnast frekari skoðunar er þér vísað til tannlæknis. Tími hjá tannfræðingi kemur því ekki alltaf í stað reglulegrar skoðunar hjá tannlækni.
Hversu oft þarf að koma í tannhreinsun?
Þörfin er einstaklingsbundin. Fyrir marga nægir að hreinsa tennurnar samhliða reglulegu eftirliti. Þeir sem mynda mikinn tannstein, eru með tannholdsbólgu eða tannholdssjúkdóm geta þurft að koma oftar í sérstakan tannhreinsunartíma.
Tannlæknirinn eða tannfræðingurinn metur í samráði við þig hversu oft tannhreinsun er nauðsynleg.
Þarft þú að koma í tannhreinsun?
Ef langt er síðan tennurnar voru hreinsaðar, tannholdið blæðir eða þú finnur fyrir tannsteini á tönnunum getum við hjálpað. Hægt er að sinna tannhreinsun samhliða reglulegu eftirliti eða bóka sérstakan tíma hjá tannlækni eða tannfræðingi.
Hjá okkur starfa tannfræðingar á Selfossi og í Reykjavík sem sinna tannhreinsunum og fræðslu um tannhirðu af alúð.