Tannréttingar með glærum skinnum

Smávægilegar bit eða tannskekkjur eru algengt vandamál sem hingað til hefur aðeins verið hægt að leysa með föstum tannréttingatækjum, svo kölluðum teinum. Í dag er hægt rétta tennur með glærum skinnum sem eru nær ósýnilegar og hægt að fjarlægja úr munni. Kerfið sem við notum hjá Tannlæknaþjónustunni heitir Ordoline en á bakvið það eru tannréttingasérfræðingar sem hjálpa til við meðferðaráætlanir og veita stuðning allt ferlið til enda.

Hvað er átt við með ósýnilegum tannréttingum?

Tannréttingar með glærum skinnum eru stundum kallaðar ósýnilegar tannréttingar

þar sem þær eru lítt áberandi. Skinnurnar eru bornar í munni allan sólarhringinn

nema meðan borðað er og drukkið. Mælt er með að þær séu í munni í 22 klst á

sólarhring. Skipt er um skinnur á 7-10 daga fresti og meðferðin getur tekið 6-20

mánuði. Hjá Tannlæknaþjónustunni leysum við létt þrengsli , smávægilegur skekkjur

eða bitvandamál með glærum skinnum og tekur meðferðin í flestum tilvikum innan

við ár. Flóknari tilvikum vísum við á sérmenntaða tannréttingatannlækna.

Hverjir eru kostirnir við skinnumeðferð?

Skinnumeðferð hefur marga kosti umfram föst tannréttingatæki, sérstaklega í

einfaldari tilvikum. Þær eru nánast ósýnilegar og þeim fylgir enginn sársauki. Þú

þarft ekki að koma eins oft í skoðun eða einungis á 3-4 mánaða fresti miðað við 1-2

mánaða ef þú ert með teina. Neyðartilvik eru sjaldgæf og skinnurnar eru þægilegar

og hægt að taka úr munni eftir þörfum. Þær hafa engin áhrif á tannheilsu þar sem

hægt er að bursta tennur eins og áður. Síðast en ekki síst getur þú borðað hvað

sem er meðan á meðferðinni stendur, þú tekur skinnurnar einfaldlegar úr munni

meðan þú matast.

Hvernig fer undirbúningur fram?

Mikilvægt er að gera góða tannskoðun áður en meðferð fer fram og tryggja að allar

tennur séu í góðu lagi og fyllingar og aðrar viðgerðir í góðu standi. Ekki er ráðlagt að

gera viðgerðir í tennur á meðan meðferð stendur þar sem það getur breytt því

hvernig skinnurnar passa í munni.

Tennur þínar og samanbit er skannað í þrívíddarskanna, það eru teknar þrívíðar

röntgenmyndir og ljósmyndir, allt til að gefa sem gleggsta mynd af stöðunni.

Upplýsingarnar eru notaðar til að gera sérsniðna meðferðaráætlun með aðstoð

tannréttingasérfræðinga hjá Ordoline tannréttingakerfinu. Í næstu heimsókn fer

tannlæknirinn þinn yfir meðferðaráætlunina og sýnir þér þá lokaútkomu sem

fyrirhuguð er.

Hvernig gengur meðferðin fyrir sig?

Þú byrjar strax að nota skinnurnar um leið og þú færð þær afhentar. Þú skiptir um

skinnu á 7-10 daga fresti eftir því hvaða fyrirmæli þú færð. Þú þarf að koma í skoðun

til tannlæknis á 3-4 mánaða fresti til að fylgja meðferðinni eftir. Í flestum tilvikum þarf

að líma hnappa á tennurnar á nokkrum stöðum til að skinnurnar nái að þrýsta á

tennurnar og færa þær til.

Hvaða efni er í skinnunum?

Efnið sem er í skinnunum er glært BPA -frítt læknaplast. Skinnurnar eru þunnar og

falla vel að tönnunum. Plastið er pússað fyrir aukin þægindi.

Hvernig helst árangurinn af tannréttingunni til lengri tíma?

Eftir að meðferð er lokið eru framleiddar skinnur sem halda tönnunum á sínum stað

eftir meðferðina. Þessar skinnur þarf að nota að minnsta kosti allar nætur. Stundum

er settur stoðvír bakvið framtennur, sérstaklega í neðri góm.

Gætu skinnuréttingar hentað þér?

Ef þig hefur dreymt um að lagfæra tann- eða bitskekkju en hefur veigrað þér við að

fá teina gætu skinnuréttingar verið lausnin fyrir þig.

Þú ert velkomin(n) að panta tíma í skoðun og við metum í sameiningu hvaða lausn

gæti hentað í þínu tilfelli. Ef þú hefur ekki verið hjá okkur í reglulegu eftirliti byrjum við

á almennri tannskoðun. Við hlökkum til að aðstoða þig!