Rótfylling
Hvað er rótfylling?
Þegar tönn er rótfyllt er vefurinn í kviku tannarinnar fjarlægður og í kvikuholinu er komið fyrir efni sem lokar og þéttir innra rými tannarinnar.
Hvað er tannkvika?
Kvikan er mjúkur vefur sem inniheldur taugar og æðar sem næra tönnina. Hún er staðsett í kvikuholi innst í tönninni og liggur í göngum niður í ræturnar.
Hvað gerist ef kvikan verður fyrir áverka?
Ef kvikan sýkist getur hún ekki gert við sig sjálf. Algengasta ástæðan fyrir sýkingu eru djúpar skemmdir eða tannbrot. Bakteríur í munnvatninu komast inní kvikuna og valda sýkingunni. Ef ekkert er að gert nær sýkingin út í beinið sem umlykur tönnina og graftarkýli getur myndast.
Er rótfylling sársaukafull?
Oftast ekki. Það er ekki alltaf nauðsynlegt að beita deyfingu fyrir meðferð. Hins vegar kjósa margir undantekningalaust að láta deyfa sig. Við það dofnar tönnin. Stundum er þó erfitt að deyfa tennur sem í er mikil bólga.
Hvernig er rótfylling framkvæmd?
Vefirnir innan í rótargöngunum eru fjarlægðir og rótargöngin formuð til. Rótfyllingarefninu er síðan komið í rótargöngin þegar þau hafa verið fullhreinsuð.
Hversu langan tíma tekur rótfylling?
Algengast er að sjúklingur þurfi að koma í tvö til þrjú skipti til meðferðar hjá tannlækni. Erfið tilfelli krefjast þó fleiri heimsókna. Meðferðin getur verið tímafrek, sérstaklega ef um margróta tennur er að ræða.
Hvað kostar rótfylling?
Það fer eftir meðferðinni; því hversu erfitt er að rótfylla viðkomandi tönn. Jaxlar eru dýrari en framtennur vegna þess að þeir eru með fleiri rótargöng sem erfiðara er að hreinsa. Tannlæknir getur í upphafi meðferðar gefið upp áætlaðan kostnað.
Hve lengi endist rótfyllta tönnin?
Þótt rótfylltar tennur geti verið stökkar, þá geta þær enst eins og aðrar tennur sé tryggilega gert við þær, til dæmis með krónugerð. Mikilvægt er að setja endanlega fyllingu í tönnina fljótlega eftir að rótfyllingameðferð lýkur.
Hver er munurinn á rótfyllingu og venjulegri fyllingu í tönn?
Rótfylling er sett ofan í rótargöngin. Venjuleg fylling er sett í krónuhluta tannarinnar og er oftast úr plasti. Einnig er hægt að smíða hettu yfir krónuhluta tannarinnar og er hún kölluð króna. Alltaf þarf að setja venjulega fyllingu eða krónu á þær tennur sem hafa verið rótfylltar.
Dökknar tönnin eftir rótfyllingu?
Rótfylltar tennur dökkna oft meira en lifandi tennur með árunum. Gerist það, er stundum hægt að lýsa tönnina aftur innan frá. Einnig er mögulegt að bæta útlit dökkra tanna með fyllingum eða postulínskrónum.
Hverjar eru batahorfur eftir rótfyllingu?
Batahorfur eru venjulega um 80-90%. Þetta er svolítið mismunandi eftir tilfellum. Hverfi sýking ekki er stundum mögulegt að endurmeðhöndla tönnina eða gera rótarendaaðgerð á henni.
Hvernig er líðan eftir meðferð?
Það er ekki óalgengt að finna fyrir einhverjum eymslum í tönn fyrstu dagana eftir meðferð, sérstaklega ef tönnin var aum eða með verkjum fyrir. Algengast er þó að meðferð dragi úr einkennum. Nauðsynlegt getur verið að taka væg verkjalyf í einn til fjóra daga eftir heimsókn. Ef bólga myndast eða mikill verkur er ráðlegt að hafa samband við viðkomandi tannlækni.
Hvernig er tilfinning í tönn sem hefur verið rótarfyllt?
Tilfinningin er stundum öðruvísi. Bólgan sem grasseraði innan í tönn og oft á tíðum í slíðrinu meðfram rótinni getur gert tilfinninguna öðruvísi eftir rótarmeðhöndlun. Í meirihluta tilfella þá eru ekki óþægindi í tönninni til frambúðar. Ef að einkennin blossa upp aftur þá er eitthvað að. Hafðu þá samband við tannlækninn þinn.
Er meðferð lokið strax eftir rótarfyllingu?
Nei, mjög áríðandi er að setja fyllingu í eða krónu á tönnina eftir meðferð. Bráðabirgðafyllingin sem yfirleitt er sett í eftir rótfyllingu molnar niður og rótargöngin geta sýkst aftur. Einnig er mun meiri hætta á að tönnin brotni meðan hún er aðeins með bráðabirgðafyllingu.
Hef ég einhverja aðra kosti en að láta rótfylla tönnina?
Þú getur látið draga tönnina úr. Þá þarf oftast að setja brú, tannplanta eða part í staðinn. Slíkar aðgerðir eru oft síðri en rótarfylling og eru auk þess allmiklu dýrari. Meta þarf hvert tilfelli fyrir sig.
Er að vænta einhverra sérstakra erfiðleika í meðferðinni?
Oft eru rótargöng bogin, það geta verið auka rótargangar, rótargöngin kölkuð eða erfiðleikum bundið að komast fyrir sýkingu. Í slíkum tilfellum þarf stundum að senda sjúkling til rótfyllingarsérfræðings sem hefur smásjá sér til aðstoðar. Það tekst ekki alltaf að meðhöndla sýktar tennur og getur orðið nauðsynlegt að fjarlægja þær.
Hve lengi endist rótfylling?
Rótfylling á að geta dugað út ævina, ef tönnin endursýkist ekki. Það verður að bursta og þrífa rótfylltar tennur eins vel og aðrar tennur. Krónuhluti og rótarhluti tannar getur skemmst þó að tönnin sé rótfyllt. Rótfylltar tennur verða þurrar og stökkar með tímanum og því er æskilegt og oft nauðsynlegt að setja postulínskrónu yfir tönnina til að styrkja hana og vernda. Í vissum tilfellum nægir að setja endanlega fyllingu, t.d. úr plasti til að loka tönninni. Efni og aðstæður ráða því hvaða lokameðferð er valið í hverju tilfelli.
482-3333 mottaka@tannalfur.is