Andremma – fyrir heimasíðu

Apr 15, 2026

Ert þú með andremmu ?

Næstum helmingur fullorðins fólks upplifir sig stundum eða alltaf með andremmu, stundum svo slæma að hún hefur áhrif á sjálfstraust, félagslíf og samlíf með öðru fólki.  

Enginn óskar sér að vera andfúll og tannlæknar fá oft spurningar um hvað sé til ráða gegn þessu hvimleiða ástandi.

Hverjar eru ástæður andremmu?

Andremma getur verið af lífeðlisfræðilegum orsökum, eðlileg starfssemi líkamans er þá á þann hátt að andremma myndist.  Hún getur líka stafað af sjúkdómum, annars vegar sjúklegu ástandi í munni eða af öðrum sjúkdómum hjá einstaklingnum. 

Andremma er algeng í öllum aldurshópum en hlutfallið eykst með hækkandi aldri. Margir eru ómeðvitaðir um ástandið og fólk er tregt til að benda öðrum á slíka ákomu.  Tannlæknar eru duglegir að leiðbeina með tannhirðu en láta stundum undir höfuð leggjast að benda á andremmu eða leiðir til að meðhöndla hana.

Ástæða andremmu er oftast að finna í munninum sjálfum.  Hún stafar af því þegar loftfælnar bakteríur brjóta niður prótein frá fæðuleifum, munnvatni, tannsýklu og frumuleifum. Við niðurbrotið verða til rokgjörn brennisteinssambönd svo sem vetnissúlfíð, metýlmerkaptan og dimetylsúlfíð sem hvert hefur sína einkennandi lykt. Vetnissúlfíð lyktar eins og rotnandi egg, metýlmerkaptan hefur stingandi lykt af rotnandi káli og dimetilsúlfíð er með óþægilega sæta lykt.  

Skán á tungu, léleg munnhirða, tannholdsbólgur,tannsteinn, bólgur í slímhúð og  tannholdssjúkdómar stuðlar allt að andremmu og er skýringin á 80-90% af tilfellunum.

Aðrar orsakir geta verið bakflæði, sem gefur sterka einkennandi lykt, tóbaksnotkun, munnþurrkur og lyktarsterkar fæðutegundir svo sem hvítlaukur.

 Andfýla að morgni er oft vegna minni munnvatnsframleiðslu og hreyfingarleysis á munnsvæði meðan sofið er, sem ýtir undir fjölgun baktería og niðurbrot fæðuleyfa.

Stundum kemur andremman frá nefinu frekar en munnholinu.  Orsökina er þá oft að finna í öndunarveginum og getur stafað af ýmsum sjúkdómum svo sem krónískum lungnasjúkdómum, lifrarsjúkdómum eða sykursýki.  Tannlæknir getur oft hjálpað með andremmu frá munni en ef hún er frá nefi þarf að vísa einstaklingnum á lækni, sérstaklega ef engin þekkt ástæða er fyrir hendi.

Ástand þar sem einstaklingar eru mjög hræddir um að vera andfúlir er þekkt.  Þá finnur tannlæknir eða aðrir rannsakendur enga ástæðu fyrir andremmu og enga lykt frá einstaklingnum.  Það getur verið erfitt að sannfæra viðkomandi um að hann sé ekki með andremmu og stundum þarf sálfræðingur að koma inn í spilið.

Hvernig metur tannlæknir andremmu?

Tannlæknir getur á einfaldan hátt metið andremmu hjá einstakling.  Það gengur þannig fyrir sig að einstaklingurinn lokar munninum í um það bil eina mínútu og blæs síðan rólega út eingöngu því lofti sem er í munninum.  Tannlæknirinn er um það bil 10 cm frá munninum og finnur lyktina af útöndunarloftinu sem hann metur á skalanum 0-6 þar sem 0 er engin lykt en 6 er mjög óþægileg lykt sem erfitt er að þola.  Bæði er hægt að meta lykt frá nefi og munni með þessum skala.

En hvað er til ráða?

Ef sjúkdómar eða bólgur eru til staðar í munnholi er alltaf byrjað á því að veita viðeigandi meðferð við þeim.  Meðferðin felst oftast í góðri tannhreinsun og leiðbeiningum með munnhirðu.  Það er alltaf gott ráð að bæta munnhirðuna, bursta tennur vandlega tvisvar á dag og nota tannþráð daglega eða millitannabursta ef tannlæknir ráðleggur það. Ef skán er á tungu er ráðlagt að nota tungusköfu og hreinsa tunguna eða bursta hana með tannbursta.

Ef andremma lagast ekki næganlega þrátt fyrir góða munnhirðu og sjúkdómaleysi í munni er ráðlagt að nota munnskol sem inniheldur zink.  Zinkjónir binda rokgjörn efnasambönd og minnka andremmu.  Einnig er hægt að fá vörur svo sem tannkrem og munnskol sem innihalda bæði zinkjónir og bakterídrepandi efnasambönd svo sem klórhexidin.  Rannsóknir hafa sýnt að þessar vörur minnka andremmu og geta verið til gagns fyrir þá sem glíma við þetta leiða vandamál.

Fréttir, ráð og fróðleikur

Langar þig að fræðast meira um tannlækningar eða munnheilsu almennt? Hér finnur þú blöndu af reynslusögum sjúklinga, fræðandi greinum og gagnlegum upplýsingum. Góða lestur!