Tannheilsa á efri árum

Apr 15, 2026

Older women flossing

Það er óhjákvæmilegt að líkaminn breytist með aldrinum – og munnurinn er þar engin undantekning. Tennur, tannhold, slímhúð og jafnvel bragðskyn ganga í gegnum hægfara en merkjanlegar breytingar eftir því sem árin líða. Þessar breytingar eru þó sjaldnast eingöngu vegna aldursins sjálfs; lífstíll, sjúkdómar og lyfjanotkun skiptir líka miklu máli

En hvað gerist í raun og veru í munni okkar þegar við eldumst?

Tennurnar segja sögu lífsins

Tennurnar okkar bera með sér spor daglegs lífs. Með tímanum slitna þær vegna tyggingar, gnísturs og áhrifa frá fæðu og drykkjum. Glerungurinn – harða yfirborð tannarinnar – þynnist og undirliggjandi tannbein, sem er dekkra, verður sýnilegra. Litur úr fæðu safnast fyrir inn í tönnunum og saman gerir þetta að verkum að tennurnar dökkna með aldrinum.

Framtennur geta styst, slitkantar myndast og yfirborð verður óreglulegt. Sprungur og jafnvel smábrot verða algengari, sérstaklega ef tennur hafa orðið fyrir miklu álagi í gegnum tíðina. Á sama tíma verða taugar tannanna kalkaðar og minna næmar, sem þýðir að við finnum síður fyrir verkjum – jafnvel þegar eitthvað er að.

Tannhold og stoðvefir veikjast

Eitt af því sem margir taka eftir er að tannholdið hörfar. Rætur tannanna verða berskjaldaðri og viðkvæmari fyrir skemmdum. Þar sem rótaryfirborðið er mýkra en glerungur, getur röng tannburstatækni eða of mikið slípiefni í tannkremi valdið svokölluðum burstaskaða.

Tannholdssjúkdómar verða einnig algengari með aldrinum. Þeir geta þróast hægt og án mikilla einkenna, sérstaklega þar sem bólgusvörun líkamans minnkar. Í alvarlegum tilfellum getur þetta leitt til tannloss. Tannholdssjúkdómar hafa ekki bara áhrif á tennurnar því rannsóknir hafa leitt í ljós að langvarandi bólgur í munni geta aukið líkurnar á hjarta og æðasjúkdómum og heilaslagi. 

Munnþurrkur – vanmetið vandamál

Munnþurrkur er eitt algengasta vandamálið hjá eldra fólki. Hann er oftast ekki beint afleiðing aldurs heldur er hann frekar tengur lyfjanotkun. Munnvatn gegnir lykilhlutverki í að vernda tennur, halda munni hreinum og auðvelda bæði tal og tyggingu.

Þegar munnvatnið minnkar:

  • eykst hætta á tannskemmdum
  • tygging og tal verða erfiðari
  • bragðskyn getur breyst
  • hætta á sveppasýkingum eykst

Slímhúð, tunga og bragð

Slímhúðin í munni þynnist og verður viðkvæmari. Sár myndast auðveldlega og gróa hægar, sérstaklega hjá einstaklingum með ákveðna sjúkdóma eins og sykursýki.

Á sama tíma fækkar bragðlaukum á tungunni. Hún verður sléttari og bragðskyn minnkar. Margir upplifa aukna löngun í sætari mat, sem getur haft áhrif á næringu og tannheilsu

Kjálkabein og tyggigeta

Við tanntap rýrnar kjálkabeinið sem getur haft áhrif á möguleika á tannplöntum. Tyggigeta minnkar og fólk velur sér oft mýkri fæðu – sem er ekki alltaf næringarríkust.  Sumir þurfa að notast við gervitennur sem sitja verr ef kjálkabeinið er rýrt.  Illa passandi og lausar gervitennur hafa líka áhrif á fæðuval. 

Skynjun og stjórn

Með aldrinum getur skynjun í munni breyst. Samhæfing tyggingar og kyngingar versnar hjá sumum, sérstaklega þeim sem glíma við taugasjúkdóma. Þetta eykur hættu á ásvelgingu og getur gert tannlæknameðferðir erfiðari.

Hvað getum við gert?

Þrátt fyrir allar þessar breytingar er mikilvægt að muna að góð munnheilsa er vel möguleg langt fram á efri ár. Lykillinn liggur í reglulegri umhirðu og meðvitund:

  • Bursta tennur tvisvar á dag með flúortannkremi
  • Hreinsa á milli tanna daglega (tannþráður eða millitannabursti)
  • Drekka nægan vökva
  • Takmarka sykur og einföld kolvetni
  • Fara reglulega til tannlæknis

Aldurstengdar breytingar í munni eru eðlilegur hluti lífsins – en þær eru ekki að öllu leyti óumflýjanlegar. Með góðri tannhirðu, heilbrigðum lífsstíl og reglulegu eftirliti má viðhalda sterkum og heilbrigðum munni langt fram eftir aldri.

Heilbrigður munnur stuðlar að heilbrigðum líkama. Hugsum vel um tennurnar og munnheilsuna og látum tennurnar þjóna okkur lífið út.

Fréttir, ráð og fróðleikur

Langar þig að fræðast meira um tannlækningar eða munnheilsu almennt? Hér finnur þú blöndu af reynslusögum sjúklinga, fræðandi greinum og gagnlegum upplýsingum. Góða lestur!