Hvaða tannkrem á ég að nota?
Jun 1, 2026

“Hvaða tannkrem er best að nota?” er ein algengasta spurning sem tannlæknar fá frá
sínum viðskiptavinum. Við henni er ekki til neitt algilt svar. Sumir geta notað flest
venjuleg tannkrem en aðrir þurfa að vanda valið meira svo tannkremið valdi ekki
óþarfa óþægindum eða skaða,svo sem kuli, munnangri, eða glerungsrispum.
Hvað er í tannkremstúpunni?
Áður en við svörum spurningunni um hvernig tannkrem á við í mismunandi tilfellum
skulum við líta á hvað tannkremstúpan inniheldur. Til að fá virkni, rétta áferð og gott
bragð eru ýmis efni notuð sem eru sameiginleg með flestum tannkremum. Þar má
nefna slípiefni, hreinsiefni, rakahaldandi efni, bindiefni, bragðefni, rotvarnarefni og
litar og sætuefni. Auk þess er í flestum tannkremum flúor til varnar tannskemmdum.
Slípiefni í tannkremum eru mikilvæg þegar kemur að hreinsun tanna, til að
fjarlægja lit og pússa yfirborð tannanna. Slípiefnin geta verið mis gróf og ef þau eru
of slípandi geta þau valdið skaða á yfirborði tannanna og stundum kuli í tönnum.
Almennt má segja að tannkrem sem eru ætluð viðkvæmum tönnum séu með lægra
slípigildi en þau sem eiga að hvítta eða koma í veg fyrir tannsteinsmyndun.
Hreinsiefni í tannkremum hjálpa til við hreinsun tannanna með því að losa
tannskánina frá tönninni og minnka yfirborðspennu í tannkreminu sem gerir það að
verkum að það dreifist betur og freyðir í munni. Eitt algengasta hreinsiefnið er
sodium lauryl sulfate, oft skammstafað sls. Þetta efni getur verið ertandi fyrir
slímhúð og fyrir viðkvæma slímhúð og þá sem eru gjarnir á að fá munnangur er
mikilvægt að velja tannkrem sem er laust við sls.
Rakagefandi efni í tannkremum eru notuð til að koma í veg fyrir að það þorni, þau
auka líka sætu og bæta áferð tannkremsins ásamt því að koma í veg fyrir að það
mengist af örverum. Dæmi um rakagefandi efni eru glycerin, sorbitol, xylitol, isomalt
og erythritol.
Bindiefni gefa tannkremum þann eiginleika að verða þynnri við burstun og auðvelda
þannig dreifingu þess um munninn. Bindiefnin bæta áferð tannkremsins og gefa
betri burstatilfinningu auk þess sem þau auka froðumyndun. Bindiefni auka líka
geymslustöðugleika tannkremsins. Dæmi um bindiefni eru ýmsar tegundir cellulosa
auk carragena, xanthan gum og polyacrylata.
Bragðefni í tannkremum hafa það hlutverk að láta tannkremið bragðast betur.
Dæmi um bragðefni eru piparmynta, mentol og grænmynta (spearmint), einnig
vanilla, kanill, appelsína, ferskja og fleiri ávaxatabragðefni sem eru algeng í
barnatannkremum.
Flúor er lang mikilvægasta innihaldsefnið í tannkremum. Með tilkomu flúors í
tannkremum dró mikið úr tannskemmdum. Flúor endurkalkar byrjandi skemmdir og
minnkar hættu á úrkölkun glerungs og þar með hættu á skemmdum. Flúor er til í
nokkrum mismunandi efnasamböndum í tannkremum svo sem Natríumflúoríð (NaF),
Natríummonoflúorfosfat (Na2PO3F) og tinflúoríð (stannous fluoride) (SnF2)
Algengasti styrkur flúors í tannkremum fyrir fullorðna er 1450 ppm en 1000 ppm er
lágmark til að hafa tilætluð áhrif. Tannkrem með þrisvar sinnum meira flúor eða 5000
ppm er á markaðnum fyrir þá sem eru í aukinni skemmdahættu en fyrir því þarf að
hafa lyfseðil.
Nokkur önnur efni geta verið í tannkremstúpunni svo sem rotvarnarefni, litarefni
og sætuefni.
Hægt er að flokka tannkrem í nokkra flokka eftir virkni þeirra:
Tannkrem sem veita vörn gegn tannskemmdum
- Öll tannkrem sem innihalda flúor. Flúor hindrar úrkölkun og hraðar endurkölkun á yfirborði glerungs auk þessa að vinna gegn tannskemmdabakteríum í munni.
- Tannkrem sem innihalda nanohydroxyapatite í stað flúors. Þetta efni hindrar ekki úrkölkun glerungs en hjálpar til við endurkölkun. Það virkar alls ekki jafn vel og flúor til varnar tannskemmdum.
- Tannkrem sem innihalda probiobtics eða góðgerla. Þessi tannkrem eiga að bæta
bakteríuflóruna í munni og vinna þannig gegn tannskemmdum en áhrif þess eru
takmörkuð.
Tannkrem sem eiga að vinna gegn tannholdsbólgum
Virk efni í þessum tannkremum geta verið sínk, tinflúoríð, triklósan eða klórhexidin.
Þessi efni vinna gegn bakteríuflóru í munni, minnka vöxt baktería og hindra
tannsýklu í að festa sig við tannyfirborðið.
Tannkrem sem vinna gegn tannstein
Þessi tannkrem innihalda efni sem draga úr myndun tannsteins ofan við tannhold.
Virku efnin geta verið Natríum eða Kalíum pýrofosföt eða önnur pýrofosfötsambönd
sem eiga að hindra vöxt apatítkristalla á tönnum. Virkni þessara tannkrema er
takmörkuð.
Hvíttunartannkrem
Fæst hvíttunartannkrem innihalda efni sem raunverulega hvítta tennur, svo sem
peroxíð. Þess í stað innihalda þau oftast mikið af slípiefnum sem eiga að hreinsa
tennurnar betur. Jafnvel þótt hvíttunarefni væri í tannkreminu væri það mjög stuttan
tíma í snertingu við tennurnar og árangurinn því mjög takmarkaður.
Svört tannkrem, svo kölluð kolatannkrem, hafa verið vinsæl sem hvíttunartannkrem.
Þau eru, eins og mörg tannkrem í þessum flokki, mjög slípandi og því skaðleg
glerung. Auk þess geta svört tannkrem skilið eftir sig lit í sprungum og
fyllingaköntum sem erfitt getur verið að ná burt.
Tannkrem fyrir viðkvæmar tennur
Þessi flokkur tannkrema er meðal þeirra sem tannlæknar mæla oftast með við
sjúklinga sína þar sem þau virka oft mjög vel gegn kuli, sérstaklega á
tannhálsasvæði. Kalíum nítrat minnkar tauganæmni og önnur mismunandi efni í
tannkreminu stífla yfirborð tannhálsins og áreiti kemst ekki gegn. Þessi tannkrem eru
yfirleitt líka með lágan slípistuðul og því mild fyrir tannyfirborðið.
Önnur tannkrem
Önnur tannkrem geta verið barnatannkrem sem eru með lægra flúorinnihald, vegan
tannkrem, tannkrem við munnþurrk sem eru þá meira smyrjandi og tannkrem án
slípiefnis fyrir fólk með mjög viðkvæma slímhúð.
En hvaða tannkremi mælir tannlæknirinn með?
Tannlæknar mæla alltaf með að velja tannkrem sem inniheldur flúor. Fyrir fullorðna í
eðlilegri áhættu er styrkurinn 1000-1450 ppm (parts per milljon) hæfilegur. Fyrir
aukna tannskemmdahættu, til dæmis ef um munnþurrk er að ræða og ef sérstakar
aðstæður eru til staðar svo sem tannréttingameðferð, geislameðferð eða eldri
einstaklingar mælum við með extra flúorríku tannkremi sem hægt er að fá gegn
lyfseðli.
Tannkrem mega ekki vera svo slípandi að þau valdi skaða á glerung. Við mælum því
ekki með að velja hvíttunartannkrem eða tannkrem sem á að hafa einhverja sérstaka
hreinsunareiginleika nema tímabundið ef litur næst ekki af með venjulegu tannkremi.
Fyrir þá sem eru með mikið kul í tönnum, ekki síst ef það er frá berum tannhálsum,
mælum við með tannkremum fyrir viðkvæmar tennur. Á okkar stofu höfum við
sérstaklega mælt með Zendium sensitive sem er með mjög góðri kulvörn og þar að
auki með lágan slípistuðul og laust við sls.
Fyrir einstaklinga sem oft fá munnangur eða eru með önnur vandamál í slímhúð
ráðleggjum við að sleppa tannkremum sem innihalda sodium lauryl sulfate (sls). Svo
virðist sem sumir einstaklingar þoli illa áhrifin frá þessu yfirborðsvirka efni.
Tannkrem sem eiga að vinna gegn tannholdsbólgum innihalda efni sem hafa áhrif,
ekki bara á skaðlegar bakteríur, heldur einnig á eðlilega flóru í munni. Við mælum
einungis með slíkum tannkremum í stuttan tíma og við sérstakar aðstæður.
Sífellt flæða ný tannkrem inn á markaðinn sem eiga að vera góð fyrir hitt og þetta og
valið getur verið erfitt fyrir þann sem ekki hefur dýpri þekkingu eða skilning á virkni
þeirra. Almennt gildir að velja tannkrem sem innihalda flúor, eru ekki of slípandi og
fyrir marga getur verið ávinningur að velja tannkrem án sls. En þegar öllu er á
botninn hvolft skiptir mestu máli að bursta tennurnar vandlega, sama hvaða
tannkrem er notað. Við mælum með vandlegri burstun tvisvar á dag og notkun
tannþráðs og /eða millitannabursta einu sinni á dag. Til að hámarka virkni flúors
mælum við með að skyrpa tannkreminu en skola ekki.


