Þegar kaldi sopinn stingur - um kul og burstaskaða.

10. nóv. 2026

Photo of a soft tooth brush

Færð þú snöggan verk í tennur þegar þú drekkur kalt, borðar ís eða burstar tennurnar? Tannkul getur haft ýmsar orsakir en ein af þeim algengustu er berir tannhálsar sem oft myndast vegna of mikils burstaálags.

Hvað er tannkul?

Eitt af algengustu umkvörtunarefnum viðskiptavina hjá tannlækni er kul í tönnum en það er þegar áreiti frá kulda veldur verk. Önnur áreiti geta valdið sömu viðkvæmni, svo sem snerting, til dæmis frá tannbursta.

Kul getur verið af ýmsum ástæðum og einkennin misjöfn, allt frá því að vera snöggur stingur sem hverfur mjög fljótt til þess að vera verkur sem situr í tönninni í lengri tíma eftir kuldaáreiti.

Þegar kuldi eða annað áreiti veldur snöggum og snörpum verk er oft um slit eða burstaskaða að ræða þar sem taugaþræðir nálægt yfirborði tannarinnar virkjast.

Þegar áreitið veldur verk sem situr í tönninni í svolítinn tíma hafa taugaþræðir dýpra inn í tönninni örvast. Þá getur verið um að ræða skemmd, brotna eða leka viðgerð eða sprungu í tönn.

Tímabundið kul í tönnum getur verið vegna tannhvíttunarmeðferðar, nýlegrar fyllingameðferðar, eftir tanndrátt eða skurðaðgerð eða eftir tannhreinsun og tannholdsmeðferð. Ef kul eftir meðferð varar meira en nokkrar vikur eða er mjög truflandi er best að leita til þess tannlæknis sem gerði meðferðina.

Ef verkur kemur við hita getur það verið merki um að skaðinn á tönninni sé alvarlegri og að bólga sé komin í tanntaugina.

Leitaðu alltaf til tannlæknis ef þú ert með verk sem situr í tönninni meira en smá stund eftir áreiti.

Hvað er burstaskaði og hvers vegna veldur hann kuli?

Burstaskaði er slit eða skaði á tönnum og tannholdi sem verður vegna of kröftugrar eða óheppilegrar burstunar yfir lengri tíma. Mikill þrýstingur, endurtekin skrúbbun fram og til baka og slípandi tannkrem geta stuðlað að skaðanum.

Slitið sést gjarnan sem dæld eða skora á tannhálsinum, við tannholdsröndina. Oft hefur tannhold hopað og rótaryfirborðið komið í ljós. Berskjaldaðir rótarfletir eru mýkri og viðkvæmari fyrir burstun en glerungsklædd krónan. Þegar rótaryfirborð afhjúpast og opnast við burstun verður það oft mjög viðkvæmt þar sem kuldinn kemst að taugendum sem liggja í rásum frá yfirborðinu inn að taugaholinu.

Photo of a exposed tooth neck

Dældir við tannhold geta myndast á annan hátt en við burstaáreiti og fleiri þættir en burstun geta haft áhrif. Sýrur úr mat, drykkjum og maga geta leyst upp yfirborð tannarinnar og gert það viðkvæmara fyrir sliti. Tannskemmd á tannhálsi, rótarskemmd, getur búið til dæld og einnig hefur verið sýnt fram á að mikið álag á tennur getur valdið því að það brotnar uppúr tannvefnum á tannhálsavæðinu svo dæld eða hak myndast.

Hvað getur þú gert til að sporna við burstaskaða og kuli í tönnum?

  • Notaðu alltaf mjúkan tannbursta og skiptu reglulega um bursta
  • Notaðu léttan þrýsting við burstun, pennagrip á burstann getur hjálpað ef þér hættir við að bursta of fast.
  • Notaðu hringlaga nuddhreyfingar með burstanum frekar en þverar stórar hreyfingar
  • Rafmagnsburstar með þrýstiskynjara geta verið hjálplegir þeim sem bursta fast
  • Notaðu tannkrem sem er ætlað fyrir viðkvæmar tennur, forðastu slípandi tannkrem
  • Forðastu að æsa upp viðkvæmni í tönnum með því að útsetja þær of mikið fyrir köldu
  • Leitaðu til tannlæknis ef þú ert með viðvarandi kul í tönnum

Hvað getur tannlæknirinn þinn gert til að draga úr kuli á tannhálsasvæði?

Tannlæknirinn byrjar alltaf á því að reyna að finna orsökina fyrir kulinu með því að skoða vandlega svæðið sem um ræðir og í sumum tilfellum taka röntgenmyndir.

Ef aðrar orsakir finnast ekki og kulið virðist koma frá berum tannhálsum þarf að grípa til viðeigandi ráðstafana.

  • Tannlæknir leiðbeinir um breyttar venjur, til dæmis tannburstatækni og tannkremsnotkun.
  • Oftast er byrjað á að bera kulvörn á svæðið sem lokar opnum rásum í tannbeininu og stöðvar áreiti á taugaenda.
  • Ef það dugar ekki er stundum gerð fylling sem klæðir yfir skaðann á tannhálsinum og varnar því að hann dýpki við áframhaldandi burstun.
  • Fyllingar á tannhálsum eru líka oft gerðar til að laga útlit tannarinnar og styrkja hana.
  • Í sumum tilfellum þar sem tannhold hefur hopað er hægt að gera aðgerð til að færa það til baka.

Ef þú þjáist af kuli í tönnum er alltaf best að leita til tannlæknis sem metur orsök, umfang og einkenni. Meðferð getur falist í breyttum venjum, kulvörn eða viðgerð. Ekki hika við að hafa samband, oft er meðferðin einfaldari en þú heldur.

Greinar, ráð og fróðleikur

Langar þig að fræðast meira um tannlækningar eða munnheilsu almennt? Hér finnur þú blöndu af reynslusögum sjúklinga, fræðandi greinum og gagnlegum upplýsingum. Góða lestur!