Tannlæknaþjónustan flytur!

10. nóv. 2026

Picture of Sóltún building with fullscale.

Í byrjun næsta árs mun Tannlæknaþjónustan flytja í nýtt og glæsilegt húsnæði að Sóltúni 26, 4.hæð, aðeins steinsnar frá núverandi húsnæði í Valhöll, Háaleitisbraut.

Með flutningnum stækkar stofan og öll aðstaða fyrir viðskiptavini og starfsmenn verður eins og best er á kosið.

Þó nokkuð af bílastæðum fylgir húsinu og yfir daginn er einnig mikið af lausum stæðum í grenndinni. Aðgengi er mjög gott, í húsinu eru 2 lyftur sem eru nýlega endurnýjaðar og auðvelt að fara um stofuna á hjólastól eða með göngugrind.

Við munum kynna nýja staðsetningu vel fyrir viðskiptavinum þegar þar að kemur svo allir rati rétta leið til okkar.

Við erum virkilega spennt að hefja starfssemi á nýjum stað og bjóða ykkur velkomin á nýja fallega og hlýlega stofu.

Greinar, ráð og fróðleikur

Langar þig að fræðast meira um tannlækningar eða munnheilsu almennt? Hér finnur þú blöndu af reynslusögum sjúklinga, fræðandi greinum og gagnlegum upplýsingum. Góða lestur!