Tannheilsa á meðgöngu

10. nóv. 2026

Meðganga getur verið ánægjulegt tímabil í lífinu þótt henni fylgi vissulega áskoranir af ýmsum toga. Tannheilsa er þar ekki undanskilin. Hætta á tannholdsbólgu, tannskemmdum og glerungseyðingu eykst en með góðri umhirðu og viðeigandi tannlæknaþjónustu má fyrirbyggja og meðhöndla flest vandamál. Það er í góðu lagi að fara til tannlæknis á meðgöngu þótt mikilvægt sé að láta tannlækninn vita af ástandi þínu.

Tannhold:

Hormónabreytingar á meðgöngu, einkum aukning á östrogeni og prógesteróni, geta aukið bólgusvörun tannholds við bakteríuskán. Breytinganna verður oft fyrst vart í öðrum mánuði en eru mest áberandi í öðrum og þriðja þriðjungi meðgöngu með hámarki í kringum áttunda mánuð. Tannholdið verður rautt og þrútið, það verður viðkvæmara og blæðir auðveldlega við burstun og tannþráðsnotkun. Vegna staðbundinnar ertingar og hormónabreytinga getur í stöku tilfellum myndast hættulaus hnúður sem líkist hindberi í áferð, oftast staðsettur milli tannanna.

Ráð fyrir tannholdið:

  • Ekki hætta að bursta tennur eða nota tannþráð þótt blæði. Það er mikilvægt að halda meðgöngutannholdsbólgum í lágmarki með góðri tannhirðu.
  • Burstið tennur tvisvar á dag með flúortannkremi og notið tannþráð daglega.
  • Leitið til tannlæknis ef ástandið verður slæmt. Þú gætir þurft á tannhreinsun hjá fagaðila að halda.

Glerungur

Ógleði á meðgöngu, bakflæði og tíð uppköst geta haft áhrif á glerung. Við uppköst og bakflæði kemst magasýra í snertingu við glerung og getur valdið glerungseyðingu. Við tíð uppköst yfir lengra tímabil getur hættan aukist. Þeir sem hafa glerungseyðingu fyrir eru í aukinni áhættu.

Ráð fyrir glerunginn:

  • Skolaðu munninn með vatni eftir uppköst
  • Ekki bursta tennur strax eftir uppköst, ráðlegt er að bíða í að minnsta kosti 30 mínútur
  • Bættu ekki á áhættuna með því að neyta gosdrykkja og orkudrykkja í óhófi

Tannskemmdir

Neyslumynstur breytist oft á meðgöngu og getur tengst ógleði og annarri vanlíðan. Þekkt er að á þessu tímabili sækja konur meira í nart á milli mála. Það getur verið erfitt að borða þungar máltíðir, sérstaklega þegar líður á meðgönguna, og fleiri og léttari máltíðir verða fyrir valinu. Brjóstsviði sem oft fylgir meðgöngu ýtir einnig undir sífellt nart. Ásókn í einhverja ákveðna fæðutegund umfram aðra er algeng. Sumar konur finna einnig fyrir munnþurrki sem getur enn frekar aukið hættu á tannskemmdum.

Ráð til að forðast tannskemmdir

  • Vertu dugleg að drekka vatn og forðastu sykraða og súra drykki
  • Reyndu að borða vel á matmálstímum og forðastu sætindi og stöðugt nart. Ef þú þarft að borða oftar reyndu að velja holl og ósæt millimál.
  • Haltu tönnunum hreinum með vandlegri tannburstun og flúortannkremi tvisvar á dag og daglegri tannþráðsnotkun.
  • Sykurlaus tyggjó geta hjálpað til að örva munnvatnsflæði og unnið gegn tannskemmdum, einkum þau sem innihalda xylitol

Er óhætt að fara til tannlæknis á meðgöngu?

Það er almennt öruggt að fara til tannlæknis á öllum stigum meðgöngu. Reglulegum eftirlitum, tannhreinsunum og nauðsynlegum tannviðgerðum ætti ekki að fresta eingöngu vegna meðgöngu. Röntgenmyndir eru teknar ef klínískar ábendingar eru fyrir hendi. Deyfing hjá tannlæknir er almennt örugg þótt forðast beri ákveðin deyfiefni, sérstaklega á seinni stigum meðgöngu. Tannúrdráttum og aðgerðum er almennt frestað fram yfir fæðingu, aðallega til að forðast þörf á að taka verkjalyf eða önnur lyf sem fylgja aðgerðinni.

Það er mikilvægt að láta tannlækni vita af meðgöngu, á hvaða stigi sem hún er.

Góð tannheilsa er mikilvægur þáttur í almennri heilsu og vellíðan á meðgöngu. Með einföldum forvörnum, góðri munnhirðu og reglulegu eftirliti er hægt að draga úr hættu á tannholdsbólgum, tannskemmdum og glerungseyðingu.

Ef þú ert með spurningar varðandi þína tannheilsu á meðgöngu eða finnur fyrir breytingum sem þú vilt fá álit á erum við hjá Tannlæknaþjónustunni til staðar fyrir þig.

Greinar, ráð og fróðleikur

Langar þig að fræðast meira um tannlækningar eða munnheilsu almennt? Hér finnur þú blöndu af reynslusögum sjúklinga, fræðandi greinum og gagnlegum upplýsingum. Góða lestur!